miðvikudagur, janúar 31, 2007

Svona hugsa japanir

Eftirfarnadi sagði ungur japani mér, reyndar í ölæði en hafði líkast til engu að síðar lagt nokkra hugsun í.
"Japanir eru með minni typpi en aðrir en bæta svo sannarlega upp fyrir það með því að verða miklu harðari en aðrir"
Þetta sagði umræddur drengur með talsverðu stolti í viðurvist kvenmanns.

Síðar sama kveld má vera að Undirritaður hafi leyst niður um sig brækurnar. Getur hann hvorki staðfest né hrakið hvoruga kenninguna.

mánudagur, janúar 22, 2007

Völva Lygavefsins 2007

  • Menn munu muna eftir árinu 2007 langt fram á árið 2008.
  • Veður mun valda usla í mannlífinu. Vegna veðurs mun fólk eiga erfitt með samgöngur og jafnvel samræður. Enn fremur mun veðrið verða valdur ýmissa samræðna manna.
  • Pólitík mun fanga huga margra á árinu og munu margir taka þátt í umræðum um pólitík. Ólíklegt fólk mun koma fram á sjónarsvið umræðna og líklegt fólk mun draga sig til hlés. Öruggt er að fólk og dýr munu deyja vegna ákvarðana stjórnmálamanna en ólíklegt er að steinar muni vakna til lífsins.
  • Nýjar uppfinningar munu hjálpa mörgum og gera einföld verk úreld.
  • Deilur eiga eftir að standa um vegarstæði og vegagerð í heild sinni. Munu heimamenn leggja fram formleg mótmæli oftar en einu sinni og jafnvel hlekkja sig við jarðýtur.
  • Lögregla mun myrða mótmælendur og mun það verða fréttamál.
  • Fólk mun deyja en fleiri munu fæðast.

fimmtudagur, janúar 18, 2007

Fyrsta færsla á tímabundnum stað

 Ég hefi hug á að halda Lygavefnum gangandi þrátt fyrir bilanir í honum því er ég búinn að útbúa þennan nýja Lygavef á meðan nýr Lygavefur er útbúinn. Von er á  nýrri útgáfu vor 2007 en búast má við nokkuð reglulegum færslum hér þangað til.

Gamalt efni má nálgast á http://www.hi.is/~jbm/?site=blog00.

VIÐBÓT: Ég biðst afsöknuar á hversu einkennilega dagsetningar eru birtar á þessari heimasíðu en kerfið er sjálfvirkt og býðir ekki upp á þær stillingar sem undirrituðum þykja bestar.