miðvikudagur, janúar 31, 2007

Svona hugsa japanir

Eftirfarnadi sagði ungur japani mér, reyndar í ölæði en hafði líkast til engu að síðar lagt nokkra hugsun í.
"Japanir eru með minni typpi en aðrir en bæta svo sannarlega upp fyrir það með því að verða miklu harðari en aðrir"
Þetta sagði umræddur drengur með talsverðu stolti í viðurvist kvenmanns.

Síðar sama kveld má vera að Undirritaður hafi leyst niður um sig brækurnar. Getur hann hvorki staðfest né hrakið hvoruga kenninguna.

6 ummæli:

Unknown sagði...

Ef svo kynni að hafa farið að Undirritaður hafi leyst niður um sig brækurnar þá hefur hann varla sannað þá kenningu japanska drengsins að þeir væru með minni typpi en aðrir (dreg þessa ályktun út frá því hversu oft þú hefur sagst vera með agnarsmátt typpi, finnst þó líklegt að þeir hefðu hrifist af sverleika) en hugsanlegt er þó að þér hafi tekist að afsanna þetta með hörkuna (miðað við höggið sem brákaði rifið).

Bergmann sagði...

Vel orðað

Nafnlaus sagði...

ég sá einu sinni japanskt tippi í klámmynd, ég held að ég muni aldrei bíða þess bætur.

Berndsen sagði...

Bergmaðurinn hafur ávallt logið til um eigin limstærð. Jeg hef sjeð slátrið á honum og það er á stærð við nokia stígvjel.

Bergmann sagði...

Búið er að staðfesta brókarfallið. Var þetta gert að ósk japananna en þeir brugðust svo einkennilega við þegar þeirra ósk uppfylltist.

Nafnlaus sagði...

Skrýtið.