miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Aðskotahlutur í stafrænum ristli

Það lítur út fyrir að vírus hafi náð að læða sér í tölvu Undirritaðs. Gæti hann kennt hinu og þessu um en ákveður þó að taka á sig sökina sjálfan þar sem hann veit hvunær og hvurnig vírusinn kom í vélina. Það er vonandi að nægilegt reynist að fletja út harða diskinn með stafrænu straujárni til að losna við þessa pest.

Einu sinni áður hefir vírus náð að ógna öryggi tölvu Undirritaðs. Var það frægur vírus á þeim tíma sem erfitt var að fjarlægja en hann tók upp á því 26. apríl hvers árs að henda öllum upplýsingum sem á harða disknum voru, þ.m.t. stýrikerfinu og persónulegum skrám. Ekkert mikilvægt tapaðist þegar gögnin fórust en Undirritaður fékk hinsvegar spark í rassinn þar sem engin vírusvörn hafði verið í vélinni marga mánuði enda hún ekki tengd netinu.

5 ummæli:

Unknown sagði...

ég man eftir umræddum vírus, því ef mig misminnir ekki þá fékk ég hann frá þér.

og svo maður geti nú sagst læra af mistökum þá er ég að hugsa um að láta ólukku þína vera spark í minn rass og setja vírusvörn á mína vél.

Bergmann sagði...

Já, það leið amk. óeðlilega stutt á milli þess að okkar vélar fengu báðar þennan vírus.

Berndsen sagði...

engin vírusvörn er besta vörnin.

Þá veit maður ekkert af óskapnaðinum fyrr en það er um seinan.

þá getur maður farið út að leika sjer

Bergmann sagði...

Já það er reyndar góð leið hjá honum Loka. Hún hefir líka þann kost að það safnast ekki upp mikið af drasli hjá manni sem getur verið hvort tveggja bölvun og kostur fyrir mann með króníska söfnunaráráttu eins og mig

Bergmann sagði...

Þess má geta að svo lítur út að vírusinn sé á braut.

Minnisatriði til míns sjálfs: Ekki opna skrár sem er nánast öruggt að innihaldi vírusa!