Þá er komið að lokum dvalar minnar hér í Japan. Eftir 1 sólarhring verð ég nýkominn um borð í flugvél JAL (Japan Airlines) á leið til London þar sem ég stoppa í 5 tíma og fer svo með Iceland air beinustu leið til Íslands og lendi að kveldi 29. mars.
Nú er ég að ganga frá herberginu mínu því ég ætla að dvelja mína síðustu nótt í Japan niðri í miðbæ á hólfahóteli (e. capsule hotel), sem eru víst mjög japönsk fyrirbæri.
Mér er miður að tilkynna að litlar líkur eru á að næsti hluti sögunnar um Lothar verði birtur fyrir brottför mína héðan eins og var lofað áður.
miðvikudagur, mars 14, 2007
Framhaldsörsagan um Lothar Mattheus (7. hluti)
... Hurðin opnaðist og það fór hrollur um Lothar þegar Eric áttaði sig á því hver stóð fyrir framan hann og setti upp lúmskt glott því hann vissi hvað var í vændum. Báðir menn stóðu þöglir um stund. Glottið jókst eftir því sem þögnin varð vandræðalegri fyrir Lothar. Að lokum var þögnin brotin "Þarf ég að gera þetta?" sagði Lothar. Eric svaraði engu en glotti meira, benti á jörðina og kinkaði kolli...
Framhaldsörsagan um Lothar Mattheus (Fyrstu sex hlutarnir)
Næsti hluti sögunnar um Lothar er alveg að verða tilbúin. Til að gera menn tilbúna eftir svona langa bið munu 6 fyrstu flutarnir birtast hér.
1. hluti
Einu sinni sem oftar var ofur-súper-mega-hetjan Lothar Mattheus kominn í vandræði. Hann hafði gleymt að hlaða geimpakkann sinn og þurfti nauðsynlega að komast til tunglsins, annars mundi ríkissjónvarp þýsku nýlendunnar ekki geta sýnt Villa spætu um kvöldið þar sem spegillinn á tunglinu hafði skekkst. Klukkan var orðin 5 en allar búðir loka klukkan 4 í Þýskalandi og því gat Lothar ekki keypt sér rafhlöður. Nú voru góð ráð dýr...
2. hluti
... Hvað var til ráða? Ekki þurfti Lothar að vekja verzlunar-málaráðherra Þýskalands í þriðja sinn í þessari viku. Hann yrði ekki ánægður. Nei það gengi ekki. En þá datt Lothari snjallræði í hug. Gary Linekar gæti átt fullhlaðinn geimpakka. Lothar skokkaði yfir Holland, Belgíu og Frakkland og synti svo yfir Doversundið og tölti svo yfir að húsinu hans Gary og bankaði. En Mamma hans kom til dyra og sagði að Gary væri í útgöngubanni og mætti hvorki hitta neinn né tala við. Nú voru góð ráð ennþá dýrari...
3. hluti
... Herbergi Garys var uppi á þriðju hæð hússins. Til þess að komast svo hátt upp án þess að einhvur tæki eftir því þurfti Lothar geimpakkan sinn en hann var hleðslulaus. Lothar gekk álútur út heimreiðina, djúpt hugsi. Það var einn kostur til viðbótar en hann var ekki góður, alls ekki góður. Eric Cantona átti geimpakka, betri geimpakka en Gary og Lothar til samans. En Eric var mikill hrokagikkur og Lothar fengi ekki að vera í friði lengi vel ef hann leitaði til Erics...
4. hluti
... Eftir að hafa hugsað málið lengi vel settist Lothar undir tré í garðinum á móti húsi 13 við Viskístræti. Sólin var lágt á lofti og ekki sála á ferð. Lothari var hugsað til aumingja barnanna sem beðið höfðu í heila viku eftir að sjá Villa spætu. Honum var hugsað til barnæsku sinnar. Hvurnig hann settist við viðtækið í hverri viku til að horfa á Villa spætu. Hvurnig honum hefði liðið ef Villi spæta birtist ekki á skjánum heldur bara tunglsnjókoma. Lothar rankaði við sér þegar eitt tár féll af kinn hans niður á handabakið...
5. hluti
... Lothar vissi ekki hvað liðið hafði langur tími en eitt var víst að annað hvort mátti hann til með að laga spegilinn hið snarasta eða geafast upp, játa sig sigraðan og fara í felur að eilífu. Þá var ekkert eftir nema að bíta í eplið súra, ganga skammargönguna og beygja sig undir hvað það er Eric gæti viljað.
Heimili Erics var drungalegt einbýlishús sem alltaf virtsist rigna í kringum. 15 þung skref frá götunni upp að útidyrunum ...
6. hluti
...
"Hvur skyldi þetta vera?" muldraði brúnaþungur maður þegar barið var á hurðina sem stóð í útidyrum hans. Hann lagði frá sér sósupískinn og reyndi að setja skítuga endann fram af eldhúsbekknum til að skíta bekkinn ekki út. Það gekk ekki betur en svo að þegar hann var kominn hálfa leið að útidyrunum féll pískurinn á gólfið með tilheyrandi slurpi og glamri. Það fór hrollur niður eftir hrygg mannsins við tilhugsunina um að þrífa sósuna upp af gólfinu ...

fimmtudagur, mars 01, 2007
Gleðifregnir
Það lítur út fyrir að hin snarvonda hljómsveit Audioslave sé að leggja upp laupana vegna þess að söngvari sveitarinnar (og áberandi lélegasti meðlimur) hefir sagt skilið við hana. Ekki nóg með það heldur munu hinir meðlimir svetiarinnar taka upp samstarf við söngvarann Zach De La Rocha á ný og halda amk. ferna tónleika undir sæmdarheitinu Rage Against the Machine.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)