miðvikudagur, mars 28, 2007

Endalokin

Þá er komið að lokum dvalar minnar hér í Japan. Eftir 1 sólarhring verð ég nýkominn um borð í flugvél JAL (Japan Airlines) á leið til London þar sem ég stoppa í 5 tíma og fer svo með Iceland air beinustu leið til Íslands og lendi að kveldi 29. mars.
Nú er ég að ganga frá herberginu mínu því ég ætla að dvelja mína síðustu nótt í Japan niðri í miðbæ á hólfahóteli (e. capsule hotel), sem eru víst mjög japönsk fyrirbæri.

Mér er miður að tilkynna að litlar líkur eru á að næsti hluti sögunnar um Lothar verði birtur fyrir brottför mína héðan eins og var lofað áður.

3 ummæli:

Unknown sagði...

Það er bannað að svíkja loforð. Sökum þess hefur verið sett bann á að þú komir til landsins fyrr en næsti hluti sögunnar er kominn. Ef þú reynir að stíga fæti á Ísland þá verðurðu rekinn, og hananú.

Berndsen sagði...

Taka mynd af capsúlinu fyrir mig.

Nafnlaus sagði...

Heya!

Oh man it seems that I found your website, was quite the coincidence to bump into you on your last day in Japan! I kind of cant really read what youre writing but thats ok... *gets dictionary out* perhaps now that you have internationalised you should start writing in English, hahah. I actually wanted to learn some Icelandic for my linguistics study back in Holland, but unfortunately Icelandic teachers seem to be non-exsitent, so so much for that plan. Anyway, have a safe trip back home, perhaps we'll meet again sometime somewhere in Holland/Iceland!

Stefan