fimmtudagur, mars 01, 2007

Gleðifregnir

Það lítur út fyrir að hin snarvonda hljómsveit Audioslave sé að leggja upp laupana vegna þess að söngvari sveitarinnar (og áberandi lélegasti meðlimur) hefir sagt skilið við hana. Ekki nóg með það heldur munu hinir meðlimir svetiarinnar taka upp samstarf við söngvarann Zach De La Rocha á ný og halda amk. ferna tónleika undir sæmdarheitinu Rage Against the Machine.

5 ummæli:

Berndsen sagði...

jibbí

Berndsen sagði...

Verð jeg að segja fyrir mína parta að þetta nýja fyrirkomulag Bergmanns að skylda alla lesendur vefsíðu hans til að stimpla inn stafarugl ef þeir vilja tjá sig alveg hreint ömurlegt.

Það sem mjer þykir þó enn verra er að hann hefur tekið sjer það vald að ritskoða allar færslur lesenda fyrirfram. Efast stórlega um að þessi kvörtun mín komist á leiðarenda. Ef ekki vegna ritskoðunar, þá vegna þess að jeg klúðra innritun á stafarugli.

Nafnlaus sagði...

ratm rúlar. hvar verða tónleikarnir?

Bergmann sagði...

Biðst ég fórláts á hvurnig fyrirkomulag á þessari síðu var yfir síðastliðna helgi og vil ég um kenna lítilli þekkingu minni á virkni "bloggstjórntækja"

Fyrstu tónleikar RATM verða 29. apríl á tónlistarhátíðinni Coachella Valley Music and Arts Festival og verður þeim fylgt eftir með amk. þrennum tónleikum með Wu Tang Clan á einhvurskonar hipp hopp hátíð (Rock the Bells IV)

Unknown sagði...

mér þykir furðulegt hvursu langan tíma tekur að sjóða saman nýjan part um Lothar, sérstaklega í ljósi þess að hver partur er ekki svo langur.