Undirrituðum þykir upp á vanta öryggi heimabanka síns. Nýútgefnir auðkennislyklar eru fjærri því að vera nógu öruggir. Í rauninni sér Undirritaður einungis eitt til í stöðunni.
Til að nota heimabanka sinn þarf viðkomandi að senda inn sæðissýni til viðkomandi banka, með Íslandspósti, með 8 daga fyrirvara. Til baka fær hann svo heimabankaleyfi sem gildir í eina klukkustund, úthlutaða af handahófi. Þetta leyfi gæti verið á formi 100 stafa lykilorðs. Auk þess verður stórvaxinn maður sendur á lögheimili viðkomandi til að votta að ekki sé um sáðstuld að ræða.
Þeir sem ekki geta sent inn sáðsýni geta ekki notað heimabanka.
Þessi þjónusta gæti kostað ca. 20000kr en það er ekkert verð fyrir almennilegt öryggi og þægindi.
Einungis á þennan máta getur heimabankinn verið nægilega öruggur og þægilegur í notkun.
Öryggi og þægindi!
miðvikudagur, maí 23, 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)