skip to main |
skip to sidebar
Völva Lygavefsins 2007
- Menn munu muna eftir árinu 2007 langt fram á árið 2008.
- Veður mun valda usla í mannlífinu. Vegna veðurs mun fólk eiga erfitt með samgöngur og jafnvel samræður. Enn fremur mun veðrið verða valdur ýmissa samræðna manna.
- Pólitík mun fanga huga margra á árinu og munu margir taka þátt í umræðum um pólitík. Ólíklegt fólk mun koma fram á sjónarsvið umræðna og líklegt fólk mun draga sig til hlés. Öruggt er að fólk og dýr munu deyja vegna ákvarðana stjórnmálamanna en ólíklegt er að steinar muni vakna til lífsins.
- Nýjar uppfinningar munu hjálpa mörgum og gera einföld verk úreld.
- Deilur eiga eftir að standa um vegarstæði og vegagerð í heild sinni. Munu heimamenn leggja fram formleg mótmæli oftar en einu sinni og jafnvel hlekkja sig við jarðýtur.
- Lögregla mun myrða mótmælendur og mun það verða fréttamál.
- Fólk mun deyja en fleiri munu fæðast.
6 ummæli:
Endemis djöfulsins bull
Við skulum telja saman hversu margt af þessu rætist í árslok.
Ég er sámmala völvu lygvefsins með flest, þ.e.a.s. næstum því allt nema eitt, nema ef að völva lygvefsins á við líka í úgglöndum, þar getur nefnilega allt gerst...
Við sjáum svo bara til í loks ársins, hver lýgur meira - Lygavefurinn eða pólítíkusarnir...
ég las fram að orðinu "pólitík" og þar hætti ég, get ekki fengið mig til að hugsa um þetta fyrirbæri.
Hver þarf pólitík??
Þú ert rekinn.
Ámm.
Skrifa ummæli