miðvikudagur, mars 14, 2007
Framhaldsörsagan um Lothar Mattheus (7. hluti)
... Hurðin opnaðist og það fór hrollur um Lothar þegar Eric áttaði sig á því hver stóð fyrir framan hann og setti upp lúmskt glott því hann vissi hvað var í vændum. Báðir menn stóðu þöglir um stund. Glottið jókst eftir því sem þögnin varð vandræðalegri fyrir Lothar. Að lokum var þögnin brotin "Þarf ég að gera þetta?" sagði Lothar. Eric svaraði engu en glotti meira, benti á jörðina og kinkaði kolli...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
more, mooorrrreeee, MMMMMMOOOOOOOORRRRRRRREEEEEEEEEE
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Þetta er allt í vinnslu
Ég lofa næsta kafla áður en ég kem til Ísalandsins fagra.
Hvert er þessi saga eiginlega að fara, er þetta kannski eins og amerískir spennuþættir sem svara aldrei neinum spurningum, bæta bara við? Svo vil ég að Lothar komi út á bók.
Það má náttúrulega ekki gleymast að höfundur þessarar sögu tók þátt í sköpun Ormasögunnar forðum daga.
Þó er nokkuð skýr mynd um að eitthvað gerist í þessari sögu.
Þú getur alveg eins lesið söguna afturábak Helgi minn.
Ef þú gefur út bókina Nonni, þá verða að vera umsagnir utan á kápunni. Eitthvað í þessum anda:
"Ég á ekki til orð til að lýsa þessari bók, hvað þá höfundinum. Nema þessi: meistaraverk og snillingur." ES - Kasljósið
"7. hluti framhaldsörsögunnar um Lothar Mattheus er um margt afar athyglisverður hluti. Ljóst er að fágun höfundarins á persónum og atburðum hefur náð nýjum hæðum." EH - Silfur Egils
"Reynsla [Nonna Bergmanns] af framhaldssöguskrifum þvælist ekki í sjálfri sér með klisjukenndri endurtekningu, heldur fetar hann óhikað nýjar slóðir. Þetta er munurinn á honum og Arnaldi Indriða." SKO - Blaðið
"Í sögunum fá bdsm-kenndir Erics og pervertisminn að njóta sín, en sjálfsagt er þar um samfélagslega skírskotun að ræða." ASM - Gagnryni.is
"Nonni Bergmann er ungur höfundur sem ritar nú sagnabálk sem á engan sinn líka á Íslandi. Fyrirbrigðinu framhaldssögu er stillt upp við vegg og bent á galla þessarar gerðar bókmennta, en einnig er styrki hennar gerð góð skil." FSH - Mbl.
"Framhaldsörsagan um Lothar Mattheus er ólíkindatól og aldrei að vita hvert næsta skref verður stigið. Bravó!" PG - Fbl.
Skrifa ummæli